Sport

Sig­ríður Á. Ander­sen varð Ís­lands­meistari

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari í sínum þyngdar- og aldursflokki í kraftlyftingum.
Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari í sínum þyngdar- og aldursflokki í kraftlyftingum. Vísir/Samsett

Sigríður Á. Andersen, lögmaður og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hreppti í dag Íslandsmeistaratitil í í sínum þyngdarflokki frá fimmtíu til sextíu ára á Íslandsmóti Kraftlyftingasambandsins í dag.

Hún segir metþátttaka hafa verið á mótinu og að Kraftlyftingafélag Reykjavíkur hafi mætt fjölmennt og sterkt til leiks.

Sigríður segir að íþróttin snúist alls ekki um að rífa bara einhvern veginn í lóðin. Heldur þarf tækni og hlýðni gagnvart fyrirmælum til að gera gildar lyftur.

„Menn komast lítið áfram með agaleysi eða gassagangi,“ skrifar hún í færslu sem hún birti á síðu sinni á Facebook í dag.

Sigríður hrósaði aðstöðu lyftingadeildar Stjörnunnar sem hýsti mótið og segir að ekki þurfi að spyrja að Garðbæingunum. „Allt topp næs í Miðgarðshúsinu þeirra nýja, lóð og bekkir.“

Keppendur KFR með Ingimundi Björgvinssyni þjálfara.Sigríður Á. Andersen

„Við í einkarekna KFR minnum okkur samt á að það er æfingin sem skapar meistarann og góð stemning við það,“ segir hún.

Sigríður tók hnébeygju með hundrað kíló, bekkpressu með 55 og réttstöðulyftu með 110 kíló, sem hún tekur fram að hafi verið persónulegt met.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×